Höfundar eiga höfundarétt á innsendum handritum og á lokaútgáfu birtra greina.
Höfundar veita Verkfræðingafélagi Íslands óafturkræfan rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu og einnig til að gefa efnið út á prenti. Efni tímaritsins má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild án leyfis.
- Höfundar halda höfundarrétti á handriti sínu og endanlegri útgáfu greinar. Varðandi yfirfærslu á höfundarrétti; vinsamlegast sjá hér að neðan.
- Höfundar veita Verkfræðingafélagi Íslands óafturkallanlegt leyfi, eftir að endanleg próförk hefur verið samþykkt, til að birta greinina á rafrænu eða prentuðu formi og auðkenna sig sem upprunalegan útgefanda.
- Höfundar veita Verkfræðingafélagi Íslands viðskiptaleg réttindi til að framleiða prentað bindi af tímaritinu til til að selja til bókasafna og einstaklinga.
- Höfundar, eftir að endanleg próförk hefur verið samþykkt, veita þriðja aðila rétt til að nota greinina að vild svo framarlega sem upprunalegir höfundar hennar og tilvitnunarupplýsingar eru auðkenndar.
- Greininni er dreift samkvæmt Creative Commons Attribution 4.0 Licence afnotaleyfinu
( Creative Commons — Attribution 4.0 International — CC BY 4.0. ) Nema annað sé tekið fram er tengdu efni dreift með sama leyfi.
Samkvæmt þessu er þér frjálst að:
Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er.
Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Þó samkvæmt eftirfarandi skilyrðum:
Tilvísun — Höfundur verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi og gefa upp þær breytingar sem hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á sérhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji þig eða notkun þína á efninu.
Engar frekari takmarkanir — Höfundur má ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar hindranir sem gætu komið í veg fyrir notkun annarra í samræmi við það sem afnotaleyfið heimilar.