Flokkar
- Stjórnun
Efnisorð
- Framtíðarleitni
- Verkefnavæðing
- Delphi aðferð
- Skapandi hugsun
Í þessari þriðju grein um sögu, stöðu og þróun verkefnastjórnunar á Íslandi beinum við sjónum okkar að framtíðinni og veltum fyrir okkur hvernig þessi faggrein gæti þróast á komandi árum.
Í þessari þriðju grein um sögu, stöðu og þróun verkefnastjórnunar á Íslandi beinum við sjónum okkar að framtíðinni og veltum fyrir okkur hvernig þessi faggrein gæti þróast á komandi árum. Byggt er á nýlegri rannsókn frá Þýskalandi þar sem fjórtán framtíðarstraumar og -stefnur í faginu voru skilgreindar, án þess þó að forgangsraða þeim eða raða eftir mikilvægi.
Til að greina mikilvægustu framtíðarstrauma vekrefnastjórnunar á Íslandi var Delphi aðferð beitt og niðurstaðan var sú að fjórir mikilvægustu framtíðarstraumarnir væru (1) Verkefnadrifnar skipulagsheildir; (2) Verkefnastjórnun fær aukið vægi og viðurkenningu á borði fyrirtækjastjórna; (3) Aukið flækjustig og áhrif þessa á verkefnin og (4) Verkefnastjórnun verður viðurkennd faggrein. Rýnihópur sérfræðinga spáði í þessar almennu niðurstöður og dýpkaði þær.