Flokkar
- Stjórnun
Efnisorð
- Faggrein
- Vinnsluvirði atvinnuvega
- Áhrif
- Hagnýting
- Framtíðarleitni
Greinin sýnir fram á mikilvægi verkefnastjórnunar á Íslandi sem hlutfall af vinnsluvirði atvinnuvega hagkerfisins, þ.e. tekjum að frádregnum aðfangakostnaði. Niðurstöður rannsóknanna gefa til kynna að nálægt þriðjungur af vinnsluvirðinu megi rekja til verkefna. Ennfremur kemur fram að hlutur verkefna mun aukast í næstu framtíð.
Verkefni og stjórnun þeirra hefur þróast frá því að vera aðferðafræði við áætlunargerð til viðurkenndrar atvinnugreinar sem skiptir sköpum í samfélagi okkar daga.
Þessi grein er önnur í röð þriggja undir heitinni Verkefnastjórnun á Íslandi og fjallar um mikilvægi verkefnastjórnunar innan íslenskra fyrirtækja og hlut verkefna í íslenska hagkerfinu. Þá eru birtar tvær íslenskar atvinnulífskannanir sem styðja við greiningu á hvað ætla má að muni gerast með fagsviðið verkefnastjórnun í næstu framtíð.
Greinin sýnir fram á mikilvægi verkefnastjórnunar á Íslandi sem hlutfall af vinnsluvirði atvinnuvega hagkerfisins, þ.e. tekjum að frádregnum aðfangakostnaði. Niðurstöður rannsóknanna gefa til kynna að nálægt þriðjungur af vinnsluvirðinu megi rekja til verkefna. Ennfremur kemur fram að hlutur verkefna mun aukast í næstu framtíð. Niðurstöðurnar eru skilaboð til atvinnulífsins og yfirvalda um þá stefnumótun sem þarf að vinna og útfæra t.d. hvað varðar nauðsynlega fagþekkingu fyrir þarfir samfélagsins á næstu árum.
Loks greinir rannsóknin frá tveimur mismunandi aðferðum til að mæla mikilvægi, áhrif og aðra þróun hins “verkefnavædda” samfélags á hverjum tíma.