Flokkar
- Verkfræðinám
Efnisorð
- Einkunnir
- Nemendamat
- Vendikennsla
- Spegluð kennsla
Tvær vendikennsluaðferðir voru bornar saman við hefðbundna kennslu – byggða á fyrirlestrum. Samanburðurinn var byggður á árangri nemenda í skriflegu lokaprófi og ánægju nemenda með námskeiðið út frá árlegu kennslumati námskeiðsins.
Markmið þessarar rannsóknar var að meta hvað þarf til að bæta skilning nemenda á námsefni sem kennt er í fyrsta árs verkfræðinámskeiði. Tvær vendikennsluaðferðir voru bornar saman við hefðbundna kennslu – byggða á fyrirlestrum. Samanburðurinn var byggður á árangri nemenda í skriflegu lokaprófi og ánægju nemenda með námskeiðið út frá árlegu kennslumati námskeiðsins.
Vendikennslan fór fram árin 2015 og 2016 og voru niðurstöðurnar bornar saman við viðmið fyrir 10 ára hefðbundna kennslu sem sett voru í annarri rannsókn. Fyrirkomulag vendikennslunnar var þannig að fyrirlestrar voru teknir upp með skjáupptökuhugbúnaði sem tók upp bæði rödd kennara og aðgerðir hans á skjánum. Með tilkomu upptakanna gátu nemendur horft á fyrirlestra eftir hentugleika. Fyrirlestrarnir voru haldnir af sama kennara, námsefnið var það sama og einnig kennslubókin.
Vendikennslan árið 2015 fór fram þannig að fyrirlestratímar voru nýttir í að svara spurningum nemenda úr fyrirlestrum vikunnar. Árið 2016 var fyrirkomulaginu breytt þannig að fyrirlestratímarnir voru nýttir til að fara yfir valin hugtök og aðferðir auk þess að æfa nemendur í að beita námsefninu.
Niðurstöður sýna að það er jákvæð fylgni milli vendikennslu og meðalárangurs á lokaprófi og sterk vísbending um að nemendum sem æfa sig í að beita námsefninu í fyrirlestratíma gangi betur á lokaprófi.