Ritrýnd grein

Töl­fræði­leg greining á tjóni í Ölf­us­skjálft­an­um 2008

Þann 29. maí 2008 varð jarðskjálfti af stærðinni 6,3 (Mw) í Ölfusi. Upptök skjálftans og tvö misgengi hans voru nálægt nokkrum smábæjum og þéttbýliskjörnum á svæðinu.

Flokkar

  • Jarðtækni
  • Mannvirki

Efnisorð

  • Lærdómur af jarðskjálftum
  • Lágreist hús
  • Steinsteyptar byggingar
  • Timburhús
  • Tjónnæmi
  • Tölfræði tjóns

Höfundar

Bjarni Bessason

Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, Hjarðarhaga 2-6, 107 Reykjavík

Jón Örvar Bjarnason

Viðlagatrygging Íslands, Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.

Ari Guðmundsson

Verkís, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík.

Júlíus Sólnes

Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, Hjarðarhaga 2-6, 107 Reykjavík

Ágrip

Þann 29. maí 2008 varð jarðskjálfti af stærðinni 6,3 (Mw) í Ölfusi. Upptök skjálftans og tvö misgengi hans voru nálægt nokkrum smábæjum og þéttbýliskjörnum á svæðinu. Hágildi yfirborðshröðunar var skráð 0,88g í Hveragerði sem er aðeins 2–3 km frá meginmisgenginu.

Töluvert tjón varð í skjálftanum, en til allra hamingju urðu nánast engin slys á fólki og ekkert dauðsfall. Allar byggingar á Íslandi eru skráðar í opinberri fasteignskrá sem inniheldur margvíslegar upplýsingar um þær. Samkvæmt lögum eru allar fasteignir landsmanna tryggðar gegn náttúrvá hjá Viðlagatryggingu Íslands.

Til að meta tryggingarbætur eftir Ölfusskjálftann voru matsmenn fengnir til að skoða skemmdir og áætla viðgerðarkostnað fyrir allar byggingar á svæðinu, þar sem tilkynnt var um tjón. Tjón á hverri fasteign var flokkað í marga fyrirfram skilgreinda undirflokka.

Rannsókn á þessum tjónagögnum sýnir að skemmdir á burðarvirki er aðeins lítið hlutfall af heildartjóni, ef miðað er við útgreiddar tryggingabætur. Stærstur hluti bóta fór í að bæta viðgerðakostnað vegna útlitsskaða á veggjum sem þörfnuðust minniháttar sprunguviðgerða og endurmálunar sem og til að bæta skemmdir á gólfefnum eins og parketi og flísum.