Flokkar
- Stjórnun
Efnisorð
- Straumlínustjórnun
- Framleiðslufyrirtæki
- Matvælaframleiðsla
- Vörugæði
- Starfsánægja
Rannsóknin er tilviksrannsókn sem framkvæmd var með eigindlegum rannsóknaraðferðum í formi viðtala við stjórnendur og almenna starfsmenn fyrirtækisins. Niðurstöður leiða í ljós að marktæk breyting hefur orðið á tveimur þáttum, starfsánægju og flæði en rannsóknin leiðir hins vegar ekki ljós að vörugæði hafi aukist eftir að fyrirtækið hóf innleiðingu straumlínustjórnunar.
Straumlínustjórnun (e. lean management) er umtalað og vinsælt stjórnunarform. Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna hvernig innleiðing straumlínustjórnunar gekk fyrir sig hjá meðalstóru framleiðslufyrirtæki (Nóa Síríusi h.f.) með tilliti til þriggja rekstarþátta þ.e.:Vörugæða, starfsánægju og flæðis. Rannsóknin er tilviksrannsókn sem framkvæmd var með eigindlegum rannsóknaraðferðum í formi viðtala við stjórnendur og almenna starfsmenn fyrirtækisins.
Niðurstöður leiða í ljós að marktæk breyting hefur orðið á tveimur þáttum, starfsánægju og flæði en rannsóknin leiðir hins vegar ekki ljós að vörugæði hafi aukist eftir að fyrirtækið hóf innleiðingu straumlínustjórnunar.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að helstu hindranir í veginum á innleiðingu straumlínustjórnunar hjá Nóa Síríusi hafa einkum snúið eftirfarandi þáttum; þjálfun og þekkingu starfsfólks, skuldbindingu allra stjórnenda við innleiðinguna og þekkingu þeirra á aðferðafræði straumlínustjórnunar og loks upplýsingaflæði innan fyrirtækisins.