Ritrýnd grein

Þróun verk­efna­stjórn­unar á Íslandi: Leiðin að starfs­grein - Grein 1 af 3. (Greinin er á ensku).

Á Íslandi hefur orðið til blómlegur vettvangur fyrir verkefnastjórnun. Þessa þróun má meðal annars merkja með framboði vandaðra námslína á grunnstigi og framhaldsstigi háskóla, en einnig í vaxandi eftirspurn eftir faglegum verkefnastjórum á flestum sviðum atvinnulífsins, bæði opinberrar starfsemi og einkageirans.

Flokkar

  • Stjórnun

Efnisorð

  • Alþjóðleg þróun
  • Verkefnastjórnun
  • Faggrein
  • Þróunin á Íslandi

Höfundar

Helgi Þór Ingason

Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.

Þórður Víkingur Friðgeirsson

Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík

Haukur Ingi Jónasson

Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.

Ágrip

Upphaf verkefnastjórnunar um miðja 20. öld fólst í þróun aðferða innan fræðasviðs aðgerðarannsókna, til að gera áætlanir fyrir tímabundin og afmörkuð viðfangsefni. Síðan þá hefur verkefnastjórnun þróast ört og í dag er hún viðurkennd sem mikilvæg alþjóðleg atvinnugrein með fræðilegar grunnstoðir, skilgreind hæfniviðmið, alþjóðlega staðla og tilvísanir í bestu starfshætti.

Ísland er athyglisvert dæmi um það hvernig ný atvinnugrein verður til í þróuðu vestrænu samfélagi. Á Íslandi hefur orðið til blómlegur vettvangur fyrir verkefnastjórnun. Þessa þróun má meðal annars merkja með framboði vandaðra námslína á grunnstigi og framhaldsstigi háskóla, en einnig í vaxandi eftirspurn eftir faglegum verkefnastjórum á flestum sviðum atvinnulífsins, bæði opinberrar starfsemi og einkageirans.

Hins vegar er einnig athyglisvert að þegar kemur að svokallaðri verkefnastjórnsýslu er Ísland skemmra á veg komið en hefðbundin viðmiðunarlönd eins og Noregur, Bretland og Svíþjóð. Hér er meðal annars vísað til þess að í þessum viðmiðunarlöndunum má finna skýr og samræmd viðmið við gerð áætlana og undirbúning ákvarðana um að ráðast í stór opinber innviðaverkefni. Verkefnastjórnunarfélag Íslands gæti tekið enn sterkara leiðandi hlutverk í að fara fyrir þróun fagsviðs verkefnastjórnunar á Íslandi.