Ritrýnd grein

Þróun að­ferða­fræði fyrir mat á tækni­lega mögulegu vatns­afli með notkun vatna­fræði­lík­ana í hárri upplausn

Rafmagnsframleiðsla Íslendinga kemur að stórum hluta frá vatnsorku. Nú eru liðin rúm 30 ár frá því að síðast var lagt mat á vatnsafl landsins og á þeim tíma hafa orðið tæknilegar framfarir sem kalla á endurnýjun þessa mats.

Flokkar

  • Umhverfi
  • Virkjanir

Efnisorð

  • Vatnsafl
  • Vatnafræðilíkön
  • Tæknilega mögulegt vatnsafl
  • Vatnasvið

Höfundar

Tinna Þórarinsdóttir

Veðurstofa Íslands, Bústaðavegur 7-9, 150 Reykjavík

Sigurður Magnús Garðarsson

Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, Háskóli Íslands, Hjarðarhagi 2-6, 107 Reykjavík

Philippe Crochet

Veðurstofa Íslands, Bústaðavegur 7-9, 150 Reykjavík

Hrund Ólöf Andradóttir

Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, Háskóli Íslands, Hjarðarhagi 2-6, 107 Reykjavík

Ágrip

Rafmagnsframleiðsla Íslendinga kemur að stórum hluta frá vatnsorku. Nú eru liðin rúm 30 ár frá því að síðast var lagt mat á vatnsafl landsins og á þeim tíma hafa orðið tæknilegar framfarir sem kalla á endurnýjun þessa mats.

Markmið þessarar greinar er að lýsa þróun á aðferðafræði sem nota má við útreikninga og kortlagningu tæknilega mögulegs vatnsafls þar sem þróuð hafa verið vatnafræðileg líkön í hárri upplausn, eins og er tilfellið á Íslandi. Dagleg meðalgildi rennslis fengust á reglulegu reiknineti með 1 km upplausn með hjálp vatnafræðilíkansins WasiM.

Rennsli í farvegum var reiknað skv. rastagögnum úr ArcGIS gagnagrunni Veðurstofu Íslands um yfirborðshalla og samsöfnun rennslis. Úrkomugögn voru einnig notuð sem ígildi rennslis til þess að greina áhrif þess að nota margþætt vatnafræðilíkan fram yfir óbreytt úrkomugögn. Bæði var gert ráð fyrir miðluðu og ómiðluðu rennsli með því að nota mismunandi hlutfallsmörk á langæislínu sem rennslismat.

Mat á mögulegu vatnsafli fór fram fyrir hvern reit sem staðsettur er í rennslisfarvegi innan reikninets með 25 m upplausn. Tæknilega mögulegt vatnsafl er heildarvatnsafl miðað við fullkomna nýtni, án þess að gert sé ráð fyrir neinum takmörkunum, svo sem vegna náttúruverndar eða annarrar landnýtingar. Í þessari grein eru niðurstöður mats á mögulegu vatnsafli á vatnasviði Dynjanda á Vestfjörðum kynntar.