Grein

Samtengd hljóm­rými

Í greininni er lýst reikniaðferð til þess að glíma við samtengd hljómrými sem hafa allt aðra hljómeiginleika heldur en samfelld rými.

Flokkar

  • Mannvirki

Efnisorð

  • Hljóðrými
  • Hljóðvist
  • Hljóðmælingar

Höfundar

Ólafur Hjálmarsson

Trivium ráðgjöf, Borgartúni 20, 105 Reykjavík

Ólafur Hafstein Pjetursson

Trivium ráðgjöf, Borgartúni 20, 105 Reykjavík

Þórir Hrafn Harðarson

Trivium ráðgjöf, Borgartúni 20, 105 Reykjavík

Ágrip

Í greininni er lýst reikniaðferð til þess að glíma við samtengd hljómrými sem hafa allt aðra hljómeiginleika heldur en samfelld rými. Samræmi á milli hljóðmælinga og reiknilíkansins virðist gott í því dæmi sem hér er tekið. Hefðbundið reiknilíkan hefði gefið kolranga mynd.

Það sem er sérstaklega lærdómsríkt er hversu mikil áhrif það hefur á hljómlengd rýma að brjóta þau upp; þannig þau virki ekki eins og eitt hljómrými heldur mörg; sem draga þá hvert niður í öðru. Þar sem þörf er fyrir vel tempruð rými eins og á heimilum, opnum vinnustöðvum, opnum samkomurýmum skóla og þess háttar má því talsvert vinna með uppbroti rýmanna. Þegar tónlist á í hlut og þörf er fyrir lengri hljóm ættu menn hins vegar að fara varlega.