Öryggi og líðan áhafna íslenskra fiskiskipa
Greinin er byggð á rannsóknarskýrslu Valdimars Briem, Stefáns Einarssonar, Haralds Sigþórssonar og Olafs C. Jensen (2021). Líta má á svör þátttakendanna, sem voru sjálfboðaliðar í rannsókninni, bæði yfirmenn og hásetar á meðalstórum fiskiskipunum, sem dæmigert úrtak fyrir heilsu og líðan sjómanna á Íslandsmiðum.
Höfundar
Ágrip
Greinin er byggð á rannsóknarskýrslu Valdimars Briem, Stefáns Einarssonar, Haralds Sigþórssonar og Olafs C. Jensen (2021). Í henni voru greindar margvíslegar upplýsingar um sjómennina, t.d. aldur, starfsævi, heilsu o.fl. og þetta tengt svörum þeirra við hinum margvíslegu staðhæfingum NOSACQ-50 listans (sjá hér að neðan), sem beindust að því, að meta ánægju sjómannanna og afstöðu til starfs síns, og út frá því, öryggisandann á vinnustaðnum.
Líta má á svör þátttakendanna, sem voru sjálfboðaliðar í rannsókninni, bæði yfirmenn og hásetar á meðalstórum fiskiskipunum, sem dæmigert úrtak fyrir heilsu og líðan sjómanna á Íslandsmiðum.