Grein

Nausta­vör í Kópavogi - Rann­sókn­ir og grundun

Í grein þessari eru dregnar saman upplýsingar um það helsta sem fram hefur farið á lóðinni Naustavör 52-58 sem vegna margháttaðra aðstæðna ríkjandi á lóðinni, einkum jarðfræðilegra og jarðtæknilegra krafðist býsna ítarlegra og umfangsmikilla kannana svo fyllsta öryggis væri gætt í hvívetna.

Flokkar

  • Mannvirki

Höfundar

Pálmi R. Pálmason

Verkís, verkfræðistofa, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík.

Gunnar Þorláksson

BYGG byggingarfélag, Borgartúni 31, 105 Reykjavík

Guðjón Þór Ólafsson

BYGG byggingarfélag, Borgartúni 31, 105 Reykjavík

Ágrip

Í grein þessari eru dregnar saman upplýsingar um það helsta sem fram hefur farið á lóðinni Naustavör 52-58 sem vegna margháttaðra aðstæðna ríkjandi á lóðinni, einkum jarðfræðilegra og jarðtæknilegra krafðist býsna ítarlegra og umfangsmikilla kannana svo fyllsta öryggis væri gætt í hvívetna.

Segja má að flest við framkvæmdir í grunninum hafi gengið snuðrulaust fyrir sig, þótt aðstæður þar séu um margt frábrugðnar t.d. þeim sem eru austar á Naustavararsvæðinu. Klapparyfirborði í grunninum hallar mest til austurs og er á um 8 til 18 m dýpt. Á klöppinni, sem er Reykjavíkurgrágrýti, er víða 1-2 m þykkt jökulruðningslag og ofan á því a.m.k. á hluta lóðarinnar laus, allt upp í um 10 m þykk, mis-skeljarík botnsetslög, einkum sylti og fínsandur.

Að öllu samanlögðu verður a.m.k. enn ekki annað séð en að vel hafi tekist til með flest við grunn húsaraðarinnar Naustavör 52 – 58 í Kópavogi.