Flokkar
- Umhverfi
Efnisorð
- Oxun metans
- Urðunarstaðir í köldu loftslagi
- Losun hauggass
Yfirborðslög sem innihalda lífræn efni og oxa metan hafa hlotið viðurkenningu á undanförnum árum sem hagkvæm og áhrifarík leið til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá urðunarstöðum.
Yfirborðslög sem innihalda lífræn efni og oxa metan hafa hlotið viðurkenningu á undanförnum árum sem hagkvæm og áhrifarík leið til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá urðunarstöðum. Oxunarhæfni yfirborðslaga á íslenskum urðunarstöðum hefur hinsvegar ekki verið rannsökuð og það er takmörkuð þekking á metanoxun örvera í köldu loftslagi.
Þessari rannsókn var hleypt af stað til að meta hlutfallslega oxunarhæfni núverandi yfirborðslags í rein 2 á urðunarstaðnum í Fíflholtum á Mýrum með því að nota gasprófílaðferðina (hlutfall CO2/CH4).
Urðunarstaðurinn er ekki búinn gassöfnunarkerfi og yfirborðið er samansett af 15 - 25 cm timburkurli undir u.þ.b. 1 m af malarkenndum sandi með 7% (w/w) lífrænu innihaldi. Mælirör voru sett niður á tveim stöðum á rein 2 á mismunandi dýpi (5 - 120 cm) og punktmælingar gerðar á haust og vetrarmánuðum 2012 - 2013.
Niðurstöður sýna að andrúmsloft smýgur almennt djúpt niður í yfirborðslagið og mikil oxunarvirkni sást í gasprófílum. Oxunin átti sér aðallega stað á 40 cm dýpi og neðar, mögulega alveg frá botni yfirborðslagsins eða frá 1 m dýpt. Oxunarhlutfall var á bilinu 0 til 99% og náði hámarki á 30 - 60 cm dýpi, eða meðalgildum 59% og 77% fyrir hvort tveggja staðanna á öllu tímabilinu.
Athygli vakti að tiltölulega mikil oxun átti sér stað um vetur. Þetta bendir til þess að oxun metans geti átt sér stað árið um kring á Íslandi, en frekari vettvangsrannsókna er þörf til að sannreyna umfang þessa fyrirbæris í íslenskum urðunarstöðum. Slík rannsókn myndi einnig sannreyna hvort að sjálfgefið 10% oxunarhlutfall, sem notað er víða í líkönum sem meta myndun og losun hauggass, eigi við.