Ritrýnd grein

Lyk­il­þætt­ir í inn­leið­ingu blá­grænna of­an­vatns­lausna á Íslandi

Þétting byggðar og ákafari rigningarskúrir vegna hlýnunar jarðar auka álag á hefðbundin frárennsliskerfi sem safna ofanvatni í neðanjarðar lagnir. Ef ekkert er aðhafst þá getur tíðni flóða í þéttbýli aukist, með tilheyrandi eignatjóni og hættu fyrir umhverfi og heilsu fólks. Til lausnar þessa vanda er horft í æ ríkara mæli til blágrænna ofanvatnslausna sem vistvænnar og hagrænnar leiðar til þess að meðhöndla magn og gæði ofanvatns.

Flokkar

  • Umhverfi

Efnisorð

  • Blágrænar ofanvatnslausnir
  • Stefna
  • Innleiðing
  • Sjálfbærar ofanvatnslausnir
  • Skipulagsáætlun

Höfundar

Eyrún Pétursdóttir

Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, Hjarðarhaga 2-6, 107 Reykjavík

Hrund Ólöf Andradóttir

Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, Háskóli Íslands, Hjarðarhagi 2-6, 107 Reykjavík

Halldóra Hreggviðsdóttir

Ráðgjafarfyrirtækið Alta, Ármúla 32, 108 Reykjavík

Ágrip

Þétting byggðar og ákafari rigningarskúrir vegna hlýnunar jarðar auka álag á hefðbundin frárennsliskerfi sem safna ofanvatni í neðanjarðar lagnir. Ef ekkert er aðhafst þá getur tíðni flóða í þéttbýli aukist, með tilheyrandi eignatjóni og hættu fyrir umhverfi og heilsu fólks.

Til lausnar þessa vanda er horft í æ ríkara mæli til blágrænna ofanvatnslausna sem vistvænnar og hagrænnar leiðar til þess að meðhöndla magn og gæði ofanvatns. Blágrænar ofanvatnslausnir eins og græn þök, grænir geirar og svæði, stundum nefnd græna netið, tjarnir og regnbeð, hægja á flæði vatns og stuðla að náttúrulegri hreinsun á skaðlegum efnum sem koma frá bílaumferð, malbikssliti, þakefnum og rusli. Blágrænar ofanvatnslausnir voru fyrst hannaðar í heilt hverfi á Íslandi í Urriðaholti í Garðabæ. Jafnframt hafa skipulagsreglugerð og landsskipulagsstefna lagt línurnar fyrir innleiðingu þeirra.

Á Íslandi skortir hins vegar heildræna stefnu um innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna. Þessi grein kynnir lykilþætti árangursríkrar innleiðingar blágrænna ofanvatnslausna á Íslandi, byggt á rýni á áratuga reynslu Svía og Englendinga og núverandi laga-, skipulags-, þekkingar og gagnaumhverfi á Íslandi. Í fyrsta lagi er mikilvægt að skerpa betur stefnu um meðhöndlun ofanvatns í landsstefnu. Í öðru lagi þarf að samtvinna innleiðingu blágrænna ofanvatnslausna við skipulagsferlið, frá aðalskipulagi yfir í deiliskipulag.

Við hönnun blágrænna ofanvatnslausna þarf þverfaglegt samstarf sérfræðinga m.a. á sviði skipulags- og veitumála, jarðfræði, landslagsarkitektúrs og umhverfismála. Samvinna, hlutverk og ábyrgð þátttakenda þarf að vera vel skilgreind í gegnum alla áfanga á lífsskeiði lausnanna, frá stefnumótun, til skipulags, hönnunar, framkvæmdar, reksturs og viðhalds. Styrkja þarf íslenskan gagnagrunn m.t.t. blágrænna ofanvatnslausna og auka almenna þekkingu og þjálfun hagsmunaaðila á viðfangsefninu til að stuðla að farsælli innleiðingu.