Flokkar
- Umhverfi
Efnisorð
- Neysluvatnsgæði
- Neysluvatn
- Reglugerð um neysluvatn
- Vatnsveitur
Gerð hefur verið samantekt á örveruástandi neysluvatns á Íslandi fyrir árin 2010-2012 bæði eftir stærð vatnsveitna og eftir heilbrigðiseftirlitssvæðum.
Aðgengi að heilnæmu vatni er ein af mikilvægustu stoðum lýðheilsu í hverju landi. Helsta ógnin við heilnæmi neysluvatns er saurmengun og það er hún sem veldur flestum vatnsbornum faröldrum. Gerð hefur verið samantekt á örveruástandi neysluvatns á Íslandi fyrir árin 2010-2012 bæði eftir stærð vatnsveitna og eftir heilbrigðiseftirlitssvæðum.
Þar kemur fram að örveruástand er almennt gott hjá stærri vatnsveitum en lakara hjá þeim minni. Eiturefni yfir heilsufarsmörkum er mjög sjaldgæft í neysluvatni hér á landi. Samanburður við lönd Evrópusambandsins sýnir að ástandið er svipað hér á landi og þar er varðar örverur en með því besta er varðar eiturefnin.
Gerðar eru tillögur til úrbóta til að tryggja betur gæði neysluvatns. Sérstaklega þarf að lagfæra ástandið hjá minni vatnsveitunum. Einnig þarf að bæta skráningu á frávikum og eftirfylgni með þeim. Vatnsveitur eiga að hafa innra eftirlit og auka þarf eftirfylgni með að því sé komið á og einnig að gera reglulegar úttektir á virkni þess.