Grein

Ísland í dag - Nærri tveimur áratugum síðar

Á undanförnum árum hefur umræða á Íslandi um rakaskemmdir og myglu í mannvirkjum færst í aukana. Fréttir af himinháum fjárhæðum sem varið er í viðgerðir og viðhald vegna þessa gætu útskýrt þessa vitundarvakningu sem og að fólk er meira meðvitað um slæm heilsufarsleg áhrif myglu.

Flokkar

  • Mannvirki
  • Umhverfi

Höfundar

Ólafur Hjálmarsson

Trivium ráðgjöf, Borgartúni 20, 105 Reykjavík

Ásta Logadóttir

Lota verkfræðistofa, Guðríðarstíg 2-4, 113 Reykjavík

Kristinn Alexandersson

VSÓ ráðgjöf, Borgartúni 20, 105 Reykjavík

Jóhann Björn Jóhannsson

VSÓ ráðgjöf, Borgartúni 20, 105 Reykjavík

Ágrip

Hvað felur verkfræðiráðgjöf í byggingareðlisfræði mannvirkja í sér og hvernig getur hún bætt hönnun?

Á undanförnum árum hefur umræða á Íslandi um rakaskemmdir og myglu í mannvirkjum færst í aukana. Fréttir af himinháum fjárhæðum sem varið er í viðgerðir og viðhald vegna þessa gætu útskýrt þessa vitundarvakningu sem og að fólk er meira meðvitað um slæm heilsufarsleg áhrif myglu.

Talið er að fólk í Íslandi verji um 90% af tíma sínum innandyra og er flestum því ljóst mikilvægi þess að búa við fullnægjandi innivist og loftgæði í híbýlum sínu. Þörfin fyrir vatns- og rakaheld hús er því aðkallandi hér á landi.