Ritrýnd grein

Í upphafi skal endinn skoða - Laga­setn­ing skoðuð út frá aðferðum verk­efna­stjórn­unar.

Miklu skiptir að ráðist sé í rétt verkefni á réttum forsendum og þau leiði til þeirrar niðurstöðu sem er vænst. Skortur er á að heildstætt mat sé gert á verkefnum sem lög leiða til, áður en lögin eru samþykkt.

Flokkar

  • Stjórnun

Efnisorð

  • Verkefnastjórnun
  • Lagafrumvörp
  • Alþingi
  • Ráðuneyti

Höfundar

Ásgerður I. Magnúsdóttir

Advania, Guðrúnartúni 10, 105 Reykjavík.

Helgi Þór Ingason

Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.

Haukur Ingi Jónasson

Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.

Ágrip

Lagasetning er endapunkturinn í ákvörðunarferli um að ráðast í tilteknar breytingar og leiðir yfirleitt til verkefna sem geta verið af öllum stærðum og gerðum. Miklu skiptir að ráðist sé í rétt verkefni á réttum forsendum og þau leiði til þeirrar niðurstöðu sem er vænst.

Skortur er á að heildstætt mat sé gert á verkefnum sem lög leiða til, áður en lögin eru samþykkt. Slíkt mat ætti heima í almennri greinargerð og fylgiskjölum með frumvörpum. Greinagerðir með frumvörpum eru ekki samræmdar og mikið skortir á að alltaf séu tilteknir þættir sem varða afmörkun, verkþætti, tíma, heildarkostnað, hagsmunaðila og áhættur verkefna sem framkvæma þarf verði frumvarp að lögum. Gæðaeftirlit er einnig mismunandi eftir gerð frumvarpa.

Hér eru mikil tækifæri til að bæta stjórnsýsluna. Settar eru fram tillögur til úrbóta.

Sjá meginmál greinar í PDF skjali