Flokkar
- Stjórnun
Efnisorð
- Innleiðing
- Áætlanagerð
- Innri kostnaður
Innleiðing ISO 9001 gæðastjórnunarkerfa hjá 21 fyrirtæki var könnuð með viðtölum við gæðastjóra fyrirtækjanna.
Innleiðing ISO 9001 gæðastjórnunarkerfa hjá 21 fyrirtæki var könnuð með viðtölum við gæðastjóra fyrirtækjanna. Almennt virðist sem fyrirtækin líti á innleiðinguna sem verkefni, og þau beita hefðbundnum aðferðum verkefnastjórnunar; þó í mismunandi mæli og á mismunandi vegu.
Jákvæðni og þátttaka stjórnenda þjónaði lykilhlutverki í árangursríkri framkvæmd ásamt virkri þátttöku starfsmanna, sem og undirbúningi og markmiðssetningu.
Fullyrða má að fyrirtæki sem kortlögðu innri kostnað sinn við innleiðinguna, það er kostnað vegna þátttöku starfsmanna sinna,
luku innleiðingunni á áætluðum tíma sem var áberandi skemmri en hjá fyrirtækjum sem ekki tóku tillit til þessa innri kostnaðar.