Flokkar
- Mannvirki
- Samgöngur
Efnisorð
- Hröðuð álagspróf
- Svörun vegbygginga
- Niðurbeygjur vegbygginga
- Óbundin malarefni
- Rakaáhrif
Aðferðir við burðarþolshönnun vega hafa til langs tíma byggt á reynslu. Þessar aðferðir eru einfaldar en takmarkaðar og niðurstöðurnar oft einhæfar og ógagnsæjar.
Aðferðir við burðarþolshönnun vega hafa til langs tíma byggt á reynslu. Þessar aðferðir eru einfaldar en takmarkaðar og niðurstöðurnar oft einhæfar og ógagnsæjar.
Víða er verið að þróa nýjar aflfræðilegar hönnunaraðferðir sem spá fyrir um niðurbrotshegðun vega sem fall af tíma. Hegðunin er háð mörgum ólíkum þáttum svo sem álagi, efnisvali, þykkt laga og umhverfisþáttum. Helsti veikleiki aflfræðilegu aðferðanna er takmörkuð þekking á áhrifum ýmissa umhverfisþátta (s.s. hitastigs, raka og frosts/þíðu skipta) á efniseiginleika mismunandi laga vegarins og hver séu tengslin milli niðurbrotsferils vegarins og umhverfisþáttanna.
Hröðuð álagspróf (APT) þar sem vegbygging var prófuð með þungum bílhermi (HVS) og svörun mæld sem fall af tíma voru notuð til að kanna og greina hvaða áhrif þung umferð og aukinn raki hefðu á vegbygginguna.