Ritrýnd grein

Greining á vali verktaka: Áhættu­söm við­skipti? (Greinin er á ensku).

Megintilgangur þessarar rannsóknar var að fara yfir aðferðir við val á verktökum, sem íslenskar skipulagsheildir notast við. Þessar aðferðir voru bornar saman við alþjóðlegar aðferðir - sem endurspegla faglegt þekkingarstig samtímans.

Flokkar

  • Stjórnun

Efnisorð

  • Verklegar framkvæmdir
  • Áhætta
  • Val verktaka

Höfundar

Helgi Þór Ingason

Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.

Björg Brynjarsdóttir

ISAVIA, Dalshrauni 3, 220 Hafnarfirði

Halldór Jónsson

Juris, Borgartúni 26, 105 Reykjavík

Ágrip

Í samfélagsumræðunni er oft fjallað um vandamál innan mannvirkjageirans - eins og framúrkeyrslu í kostnaði og tafir, og ekki síður vandamál sem tengjast gæðum. Stundum er til þess vísað að þessi vandamál séu afleiðing af hinu ófyrirsjáanlega eðli greinarinnar. Hins vegar liggur fyrir að einn áhrifamesti þátturinn sem hefur áhrif á útkomu slíkra verkefna er val á verktökum, sem fer fram á fyrri stigum verkefnanna.

Megintilgangur þessarar rannsóknar var að fara yfir aðferðir við val á verktökum, sem íslenskar skipulagsheildir notast við. Þessar aðferðir voru bornar saman við alþjóðlegar aðferðir - sem endurspegla faglegt þekkingarstig samtímans. Niðurstöðurnar benda til þess að íslenskar skipulagsheildir notist við margþætt viðmið að einhverju leyti, en verð er þó langmikilvægasta viðmiðið og í því getur falist áhætta.