Grein

Gerð­ar­dóm­ar – kjörin leið til að leysa úr ágrein­ingi sem tengist verk­fræði­leg­um við­fangs­efn­um

Þó gerðardómar hafi um langt skeið verið valkostur við úrlausn deilumála í viðskiptum og viðskiptasamningum á Íslandi þá hefur notkun þeirra við úrlausn deilumála í verkfræðilegum viðfangsefnum verið takmörkuð. Í þessari grein er leitast við að draga fram kosti og galla gerðardóma í samanburði við rekstur mála fyrir almennum dómstólum.

Flokkar

  • Stjórnun

Höfundar

Þröstur Guðmundsson

Gálghamar ehf. Birkiási 5, 210 Garðabæ. Verkfræðideild, Háskólinn í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík

Ágrip

Íslenskir gerðardómar byggja á lögum nr. 53/1989 um samningsbundna gerðardóma. Þó gerðardómar hafi um langt skeið verið valkostur við úrlausn deilumála í viðskiptum og viðskiptasamningum á Íslandi þá hefur notkun þeirra við úrlausn deilumála í verkfræðilegum viðfangsefnum verið takmörkuð. Fyrir þessu kunna að vera margar ástæður en ein þeirra er skortur á upplýsingum og þekkingu.

Í þessari grein er leitast við að draga fram kosti og galla gerðardóma í samanburði við rekstur mála fyrir almennum dómstólum. Auk gerðardóma fyrir viðskiptasambönd þekkjast gerðardómar sem snúa að launa- og kjaramálum en slíkir gerðardómar eru fyrir utan viðfangsefni þessarar umfjöllunar.