Ritrýnd grein

Gæða­stjórn­un á sviði verk­fræði­ráð­gjafar - getum við gert betur? (á ensku)

Sú breyting hefur orðið á starfi íslenskra verkfræðistofa á undanförnum árum að flestar þeirra eru vottaðar samkvæmt ISO 9001 stjórnunarstaðlinum. Í þessari grein er fjallað um þessa umbreytingu úr þremur mismunandi sjónarhornum. Vottuð fyrirtæki þurfa að stunda stöðugt umbótastarf til að aðlaga og bæta gæðakerfi sín og þau þurfa að tryggja að stjórnendur, starfsmenn og viðskiptavinir upplifi árangur af þessu umbótastarfi.

Flokkar

  • Stjórnun

Efnisorð

  • Gæðastjórnun
  • ISO 9001
  • Verkfræðistofur
  • Vottun

Höfundar

Helgi Þór Ingason

Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.

Sveinn Þór Hallgrímsson

Ráðgjafi hjá Sevo, Reykjavík, Iceland

Ágrip

Sú breyting hefur orðið á starfi íslenskra verkfræðistofa á undanförnum árum að flestar þeirra eru vottaðar samkvæmt ISO 9001 stjórnunarstaðlinum. Í þessari grein er fjallað um þessa umbreytingu úr þremur mismunandi sjónarhornum.

Í fyrsta lagi með viðtölum við gæðastjóra og stjórnendur fimm verkfræðistofa hvar 80% ráðgjafarverkfræðinga hér á landi starfa. Í öðru lagi með könnun sem gerð var meðal allra starfsmanna sömu verkfræðistofa. Í þriðja lagi með viðtölum við fulltrúa fimm stóra verkkaupa þessara verkfræðistofa, sem allir eru opinber fyrirtæki eða stofnanir.

Fulltrúar og starfsmenn verkfræðistofanna eru jákvæðir í afstöðu sinni til ISO 9001 vottunar og reynsla þeirra af vottuninni er jafnvel enn betri en þær væntingar sem gerðar voru í upphafi. Verkkauparnir eru hlutlausari í afstöðu sinni og virðast oft taka vottun verkfræðistofanna sem sjálfsögðum hlut. Engu að síður er það jafnan lykilatriði fyrir þessa verkkaupa að verkfræðistofur, sem fyrir þá starfa, séu vottaðar samkvæmt ISO 9001 staðli. Vottuð fyrirtæki þurfa að stunda stöðugt umbótastarf til að aðlaga og bæta gæðakerfi sín og þau þurfa að tryggja að stjórnendur, starfsmenn og viðskiptavinir upplifi árangur af þessu umbótastarfi.