Flokkar
- Umhverfi
Efnisorð
- Sólarpanelar
- Orkuframleiðsla
- Kostnaður
- Norðurslóðir
Á síðustu áratugum hefur verið gríðarleg þróun í nýtni á sólarsellum í heiminum og framleiðslukostnaður þeirra hefur lækkað mikið. Norðurlöndin hafa tekið markviss skref í að innleiða sólarsafnkerfi þrátt fyrir takmarkaða inngeislun á veturna.
Á síðustu áratugum hefur verið gríðarleg þróun í nýtni á sólarsellum í heiminum og framleiðslukostnaður þeirra hefur lækkað mikið. Norðurlöndin hafa tekið markviss skref í að innleiða sólarsafnkerfi þrátt fyrir takmarkaða inngeislun á veturna.
Þáttaskil urðu á Íslandi þegar IKEA setti upp safnkerfi 65 sólarpanela með 17,55 kW framleiðslugetu í Garðabæ sumarið 2018. Markmið þessa verkefnis var að meta fýsileika sólarsella í Reykjavík á grundvelli mældrar heildargeislunar í Reykjavík, framleiddri orku safnkerfis IKEA og fræðum.
Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að heildargeislun í Reykjavík (64°N, 21° V) var að meðaltali um 780 kWh/m2 á ári (árin 2008-2018), þar af mest 140 kWh/m2 í júlí og minnst 1,8 kWh/m2 í desember. Orkuframleiðsla á ársgrundvelli er hámörkuð ef sólarsellur snúa í suður í 40° halla, en lægri halli skilar sambærilegum árangri á sumrin. Hægt er að auka framleiðslu með því að auka halla panela á veturna yfir 60°.
Safnkerfi IKEA framleiddi rúmlega 12 MWh á 12 mánaða tímabili, og var sköluð árleg orka (árs orku framleiðsla deilt með hámarksafli kerfis) 712 kWh/kW. Nýtingarhlutfall kerfis, þ.e. hlutfall af mestu hámarksnýtingu, reyndist vera 69% , sem er um 10% lægra en mælst hefur í tveimur viðmiðunarrannsóknum á norðurslóðum. Rekja má þennan mun til snjó og skuggamyndunar á panela IKEA auk þess að ekki reyndist unnt að setja panela í kjörhalla vegna tæknilegra takmarkana.
Endurgreiðslutími fjárfestingar IKEA reiknast sem 24 ár, sem tekur mið af lágu raforkuverði á dreifikerfi í Reykjavík og ófyrirsjáanlegs hás uppsetningarkostnaðar. Sólarorka getur verið ákjósanlegur valkostur í orkuframleiðslu á Íslandi þegar horft er til framtíðar, meiri reynsla hefur náðst í nýtingu og ef hægt er að selja raforkuna inn á dreifikerfið