Flokkar
- Verkfræðinám
Efnisorð
- Frammistaða
- Teymi
- Nemendur
- Mat
Höfundar hafa þróað aðferðafræði fyrir kennara til að hjálpa þeim við að meta frammistöðu í umfangsmiklum nemendateymum í verkfræðinámskeiðum. Í þessari grein munum við sýna aðferðafræðina með tilviksrannsókn.
Höfundar hafa þróað aðferðafræði fyrir kennara til að hjálpa þeim við að meta frammistöðu í umfangsmiklum nemendateymum í verkfræðinámskeiðum. Í þessari grein munum við sýna aðferðafræðina með tilviksrannsókn.
Viðfangsefnið er verkefnanámskeið sem kennt hefur verið við Háskóla Íslands í 10 ár. Í námskeiðinu hanna nemendur eins sætis rafmagnskappakstursbíl, smíða hann og keppa á honum á erlendum keppnum. Markmið námskeiðsins hvert ár er það sama – að endurbæta hönnun síðasta vetrar. Frammistaða nemenda – metin útfrá stigum sem þeir hafa fengið á keppnunum – hefur nánast verið sú sama öll árin.
Tilraunir kennara til að bæta frammistöðuna hafa ekki skilað árangri. Niðurstöður sýna að með því að beita aðferðafræðinni sem höfundar hafa þróað þá geta kennarar fengið gott yfirlit yfir þá þætti sem hafa áhrif á frammistöðu nemendanna og öðlast góðan skilning á því hvað mögulega kemur í veg fyrir framþróun. Aðferðafræðin er öflugt tól sem er auðvelt að nota til að greina kerfisbundið frammistöðu nemenda og bera kennsl á vandamál.
Notandinn verður að meta hvern þátt og gefa einkunn með rökum. Þessi kerfisbundna nálgun veitir góðan skilning á virkni teymisins, hún hjálpar til við að sjá hvar vandamálin liggja og hjálpar til við að ákveða hvaða þætti þarf að skoða frekar. Þó að aðferðafræðin hafi verið hönnuð til að meta teymi nemenda þá bendir allt til þess að hún gæti verið nytsamleg til að meta frammistöðu annarra teyma – til dæmis í atvinnulífinu.