Grein

Falin verðmæti í jarð­varma­orku

Úrvinnsla kísils úr jarðvarmavatni spilar mikilvægt hlutverk í sjálfbærni og aukinni nýtingu jarðvarmavirkjana. Með því að fjarlægja kísilinn úr vökvanum er framkvæmd við niðurdælingu affallsvatns auðvelduð til muna, þar sem kísilútfellingar valda miklum vandamálum í niðurdælingarholum.

Flokkar

  • Jarðtækni
  • Umhverfi

Höfundar

Hildur Rún Sigurðardóttir Kvaran

Geosilica Iceland, Hafnargata 62, 230 Reykjanesbær

Ágrip

Úrvinnsla kísils úr jarðvarmavatni spilar mikilvægt hlutverk í sjálfbærni og aukinni nýtingu jarðvarmavirkjana. Með því að fjarlægja kísilinn úr vökvanum er framkvæmd við niðurdælingu affallsvatns auðvelduð til muna, þar sem kísilútfellingar valda miklum vandamálum í niðurdælingarholum.

Bæði er kostnaður vegna útfellingavandamála hár auk þess að möguleiki á því að vinna önnur efni úr vökvanum þegar kísillinn hefur verið fjarlægður. geoSilica Iceland er leiðandi í heiminum í úrvinnslu á kísil úr jarðvarmavatni með byltingarkenndri aðferð.