Flokkar
- Stjórnun
Efnisorð
- ISO 9001
- Gæðastjórnun
- Verkefnastjórnun
- Vottun
Engin fjárhagsleg greining hefur verið gerð á því hvort vottun skilar íslenskum fyrirtækjum fjárhagslegum ávinningi, þó gerðar hafi verið nokkrar almennar athuganir á útbreiðslu vottunar og viðhorfum fyrirtækja til vottunar.
Á undanförnum árum hafa mörg íslensk fyrirtæki innleitt gæðastjórnunarkerfi á grunni ISO9001 staðals og fengið vottun. Engin fjárhagsleg greining hefur verið gerð á því hvort vottun skilar íslenskum fyrirtækjum fjárhagslegum ávinningi, þó gerðar hafi verið nokkrar almennar athuganir á útbreiðslu vottunar og viðhorfum fyrirtækja til vottunar.
Í þessari rannsókn eru tekin til skoðunar öll íslensk fyrirtæki með ISO9001 vottun sem störfuðu á samkeppnismarkaði og þau borin saman við sambærileg fyrirtæki sem ekki höfðu vottun, til að kanna hvort greina mætti mun á þessum fyrirtækjahópum hvað varðar ýmsar fjárhagslegar kennistærðir.
Niðurstaðan er meðal annars sú að vottuðu fyrirtækin hafa hærri söluhagnaðarhlutfall og hærra eiginfjárhlutfall en þau óvottuðu.