Ritrýnd grein

Er samhengi milli verk­efna­álags og prófs­ein­kunna í fyrsta árs verk­fræði­nám­skeiði?

Markmið þessarar rannsóknar var að meta hvort „meira er betra“ gildi fyrir sambandið milli verkefnaálags og prófseinkunnar annars vegar og verkefnaálags og ánægju nemenda hins vegar.

Flokkar

  • Verkfræðinám

Efnisorð

  • Verkefnaálag
  • Einkunnir
  • Nemendamat

Höfundar

Rúnar Unnþórsson

Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, Háskóla Íslands

Guðmundur V. Oddsson

Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, Háskóla Íslands

Ágrip

Markmið þessarar rannsóknar var að meta hvort „meira er betra“ gildi fyrir sambandið milli verkefnaálags og prófseinkunnar annars vegar og verkefnaálags og ánægju nemenda hins vegar. Einungis var metið verkefnaálag sem tengdist lokaprófi; þ.e., ekki var tekin með vinna sem tengdist tölvuverkefnum sem gáfu hluta af lokaeinkunn og ekki var prófað úr.

Verkefnaálagið var metið með því að mæla hversu lengi það tók kennara
að leysa vikulegu heimaverkefnin. Ánægja nemenda var metin í árlegu kennslumati námskeiðsins. Einkunnirnar sem voru notaðar voru eingöngu úr skriflegu prófi (ekki vinnueinkunn né lokaeinkunn).

Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að það er ekki marktækt samhengi milli verkefnaálags og prófseinkunnar né verkefnaálags og ánægju nemenda.