Ritrýnd grein

Ein­angr­un, kulda­brýr og yf­ir­borðs­hiti flata

Auknar kröfur til kólnunartalna og ákvörðun á hámarksgildi leiðnitaps bygginga í byggingarreglugerð hafa vakið talsverða umræðu um áhrif kuldabrúa í hefðbundnum steyptum vegg.

Flokkar

  • Mannvirki

Efnisorð

  • Leiðnitap
  • Einangrun
  • Kólnunartölur
  • Kuldabrýr
  • Yfirborðshiti

Höfundar

Björn Marteinsson

Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, Hjarðarhaga 2-6, 107 Reykjavík. Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Árleyni 2-8, 112 Reykjavík.

Ágrip

Auknar kröfur til kólnunartalna og ákvörðun á hámarksgildi leiðnitaps bygginga í byggingarreglugerð hafa vakið talsverða umræðu um áhrif kuldabrúa í hefðbundnum steyptum vegg, sem hérlendis hefur af hefð verið einangraður að innanverðu.

Í greininni er fjallað um kuldabrúargildi í slíkum vegg og hvaða leiðir eru færar til að uppfylla kröfur byggingareglugerðar varðandi hámarks leyft leiðnitap bygginga. Kuldabrúargildi fyrir festivinkla í klæðningarkerfum utan á veggi eru reiknuð og sýnt fram á að einföldunaraðgerðir í ÍST 66 til að ákvarða slík gildi.