Ritrýnd grein

Áhrif loft­lags­breyt­inga á vatns­veit­ur og vatns­gæði á Íslandi – áhættu­þætt­ir og aðgerðir

Loftlagsbreytingar munu hafa áhrif á vatnsveitur og vatnsgæði með ýmsum hætti. Það eru fyrst og fremst þrír veðurtengdir þættir sem hafa áhrif: hærri lofthiti; hækkun á sjávarstöðu; og svæðisbundnar árstíðarbundnar breytingar á úrkomu í bæði magni og ákafa.

Flokkar

  • Umhverfi

Efnisorð

  • Loftslagsbreytingar
  • Vatnsveitur
  • Neysluvatnsgæði
  • Skriðuhætta
  • Áhættugreining

Höfundar

María J. Gunnarsdóttir

Vatnaverkfræðistofa, Umhverfis- og byggingarverkfræði, Háskóli Íslands

Sigurður Magnús Garðarsson

Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, Háskóli Íslands, Hjarðarhagi 2-6, 107 Reykjavík

Hrund Ólöf Andradóttir

Umhverfis- og byggingarverkfræðideild, Háskóli Íslands, Hjarðarhagi 2-6, 107 Reykjavík

Alfreð Schiöth

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra

Ágrip

Loftlagsbreytingar munu hafa áhrif á vatnsveitur og vatnsgæði með ýmsum hætti. Það eru fyrst og fremst þrír veðurtengdir þættir sem hafa áhrif: hærri lofthiti; hækkun á sjávarstöðu; og svæðisbundnar árstíðarbundnar breytingar á úrkomu í bæði magni og ákafa.

Í þessari rannsókn voru rýndar erlendar og íslenskar greinar og skýrslur um áhrif loftslagsbreytinga á vatnsauðlindina með áherslu á norðurslóðir. Gerð var greining á ýmsum áhættuþáttum er varðar gæði neysluvatns með greiningu á gögnum úr reglulegu eftirliti heilbrigðiseftirlita landsins með vatnsveitum og vatnsgæðum.

Einnig var gert gróft hættumat á að skriðuföll eða flóð eyðilegðu vatnsból á eftirlitssvæði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra. Helstu niðurstöðurnar eru þær að loftlagsbreytingar auka hættu á truflun á rekstri vatnsveitna og á mengun neysluvatns. Á eftirlitssvæði Norðurlands eystra eru meira en helmingur vatnsbóla í hættu á skemmdum vegna skriðufalla og á 5% vatnsbóla er skriðuhættan mikil, en flóðahætta er lítil á öllu svæðinu.

Hættan er mjög mismunandi eftir landssvæðum og er almennt séð meiri hjá minni vatnsveitum. Í lokin eru settar fram tillögur byggðar á greiningunni um nauðsynlegar aðgerðir til að bregðast við áhættuþáttunum.