Flokkar
- Mannvirki
- Stjórnun
Efnisorð
- Mannvirkjagerð
- Megindleg rannsókn
- Gæðastjórnun
- Virkt gæðastjórnunarkerfi
Sérstök áhersla var lögð á að skoða áhrif gæðastjórnunar á verkkaupa og sér í lagi hvort marktækur munur væri á ánægju verkkaupa með framkvæmd verka hjá verktökum sem störfuðu eftir gæðastjórnunarkerfi miðað við verktaka sem ekki störfuðu eftir gæðastjórnunarkerfi.
Greinin er byggð á meistaraverkefni Önnu Huldu Ólafsdóttur í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands árið 2011.
Helsta markmið verkefnisins var að skoða áhrif gæðastjórnunar á mannvirkjagerð en sérstök áhersla var lögð á að skoða áhrif gæðastjórnunar á verkkaupa og sér í lagi hvort marktækur munur væri á ánægju verkkaupa með framkvæmd verka hjá verktökum sem störfuðu eftir gæðastjórnunarkerfi miðað við verktaka sem ekki störfuðu eftir gæðastjórnunarkerfi.
Spurningalisti var lagður fyrir verkkaupa og verktaka og og gögnin notuð til að mæla fylgni milli ánægju verkkaupa með framkvæmd verks hjá verktaka við þætti úr könnun verktaka, eins og hvort hann starfar eftir gæðastjórnunarkerfi.
Helstu niðurstöður eru að marktækur munur og sterk fylgni mældist milli ánægju verkkaupa með framkvæmd og hvort verktaki starfar eftir gæðastjórnunarkerfi. Einnig sýna niðurstöður að þeir verktakar sem segjast starfa eftir gæðastjórnunarkerfi beita markvissari og skilvirkari vinnubrögðum en þeir sem starfa ekki eftir slíku kerfi.